Erlent

Handtökuskipun á leikarann Michael Madsen

Búið er að gefa út handtökuskipun á hinn danskættaða Hollywoodleikara Michael Madsen. Ástæðan er að Madsen skuldar um 60 milljónir króna í barnsmeðlög.

Í frétt um málið í Ekstra Bladet segir að um sé að ræða meðlög fyrir tvö börn Madsen sem hann á með einni af fyrrverandi eiginkonum sínum en Madsen er þrígiftur.

Fram kemur að lögreglan í Bandaríkjunum hefur sagt að ef Madsen verði handtekinn geti hann losað sig aftur úr haldi með því að greiða um 3 milljónir króna í tryggingu.

Næst verður hægt að sjá Madsen í hvíta tjaldinu í myndinni Sin City 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×