Erlent

Hermenn Gaddafi sækja í áttina að Benghazi

Hermenn hliðhollir Muammar Gaddafi leiðtoga Líbýu sækja nú hægt og sígandi í átt að borginni Benghazi sem er sú stærsta í landinu sem enn er á valdi uppreisnarmanna.

Í gær náði her Gaddafi bænum Ajdabiya á sitt vald en það er síðasti stóri bærinn á leið hersins til Benghazi.

Uppreisnarmenn sögðu í morgun að þeim hefði tekist að ná aftur á sitt vald olíubænum Brega en talsmenn Gaddafi segja það rangt. Brega hefur legið undir stöðugri stórskotahríð og loftárásum síðan um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×