Kylfingar frá Evrópu eru í fjórum efstu sætunum á heimslistanum í golfi og það hefur ekki gerst frá 15. mars árið 1992. Tiger Woods hefur hrapað eins og steinn niður heimslistann á síðustu 12 mánuðum en hann er nú í fimmta sæti. Martin Kaymer frá Þýskalandi er efstur en hann er aðeins annar Þjóðverjinn sem nær þessum áfanga.
Englendingarnir Lee Westwood og Luke Donald eru í öðru og þriðja sæti. Norður-Írinn Graeme McDowell er fjórði, Tiger Woods í því fimmta og Phil Mickelson í sjötta.
Landi Kaymer, Bernhard Langer, var fyrsti kylfingurinn í sögunni sem fékk efsta sæti heimslistans þegar listinn var settur á laggirnar árið 1986.
Aðeins 14 kylfingar hafa náð efsta sæti heimslistans frá árinu 1986 en Woods hefur nánast einokað það sæti undanfarin ár – líkt og Greg Norman gerði á árunum 1986-1998.
Eftirtaldir kylfingar hafa náð efsta sætinu og í sviganum er fjöldi þeirra vikna sem þeir sátu í efsta sætinu: Tom Lehman frá Bandaríkjunum fékk ekki langan tíma í þessu sæti árið 1997 en hann var aðeins í eina viku í efsta sætinu:
Bernhard Langer (Þýskaland) 1986 (3 vikur)
Seve Ballesteros (Spánn) 1986 – 1989 (61 vika)
Greg Norman (Ástralía) 1986 – 1998 (331 vikur)
Nick Faldo (England)1990 – 1994 (97 vikur)
Ian Woosnam (Wales) 1991 – 1992 (50 vikur)
Fred Couples (Bandaríkin) 1992 (16 vikur)
Nick Price (Zimbabwe) 1994 – 1995 (44 vikur)
Tom Lehman (Bandaríkin) 1997 (1 vika)
Tiger Woods (Bandaríkin) 1997 – 2010 (623 vikur)
Ernie Els (Suður-Afríka) 1997 – 1998 (9 vikur)
David Duval (Bandaríkin) 1999 (15 vikur)
Vijay Singh (Fijí)2004-2005 ( 32 vikur)
Lee Westwood (England) 2010 (17 vikur)
Martin Kaymer (Þýskaland) 2011
Tiger Woods hrapar eins og steinn niður heimslistann
Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar

Mest lesið




Grealish og Foden líður ekki vel
Enski boltinn


Njarðvík og ÍR fögnuðu bæði tveimur sigrum í kvöld
Íslenski boltinn



