Erlent

17 létust í flugeldaslysi í Brasilíu

Kjötkveðjuhátíðin.
Kjötkveðjuhátíðin.
Sautján manns létust í slysi í Brasilíu í gærkvöldi. Fólkið hafði tekið þátt í fögnuði í smábæ fyrir kjötkveðjuhátíðina sem verður haldin innan skamms.

Fólkið hafi verið að dansa á bak við stóran vörubíl þegar gestir hátíðarinnar skutu upp flugeldum með þeim afleiðingum að rafmagnslína slitnaði og féll á fólkið.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni, og Washington Post greinir frá, þá fengu flestir línuna beint í sig og létust í kjölfarið. Kjötkveðjuhátíðin er haldin 46 dögum fyrir páska.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×