Nýjar upplýsingar um Önnu Frank birtar í bók Jón Hákon Halldórsson skrifar 27. febrúar 2011 13:19 Legsteinn til minningar um Önnu Frank og Margot systur hennar. Mynd/ afp.
Nokkur bréf eftir Önnu Frank og myndir af henni og fjölskyldu hennar, sem aldrei höfðu komið fyrir almenningssjónir, hafa nú verið birt. Bréfin og myndirnar þykja varpa nýju ljósi á líf Frank fjölskyldunnar í Amsterdam á meðan helförin stóð yfir. Í bréfunum kemur meðal annars fram að það sem Anna Frank þráði mest var að fá að skauta aftur. Hún hafði nýlega fengið skauta áður en Nasistastjórnin í Hollandi ákvað að banna öllum gyðingum í landinu að láta sjá sig utandyra. Ofsóknir gegn gyðingum, þar á meðal Frank fjölskyldunni, voru hafnar í Hollandi. „Ég vil gjarnan fara að skauta aftur, en við neyðumst víst til að sýna smá þolinmæði þar til stríðið er búið. Ef pabbi hefur efni á því, mun ég byrja í skautatímum aftur og ef ég stend mig vel mun pabbi leyfa mér að fara til Sviss, þannig að við getum heimsótt ykkur öll," skrifaði Anna Frank í einu bréfi til ömmu sinnar og afa og fleiri úr Frank fjölskyldunni, samkvæmt frásögn Sunday Times. Bréfið var skrifað í marsmánuði árið 1941. Það er eitt af níu handskrifuðum bréfum frá Önnu, sem birtist í nýrri bók, „Treasures from the Attic: The Extraordinary Story of Anne Frank´s Family". Auk bréfanna, sem eru skrifuð frá árunum 1940 til ársins 1942, þegar fjölskyldan leitaði skjóls á háalofti í Amsterdam, eru í bókinni fjöldi mynda, teikninga og bréfa sem Otto Frank, pabbi Önnu, fékk send eða sendi sjálfur frá sér. Ottó var sá eini úr fjölskyldunni sem lifði seinni heimstyrjöldina og útrýmingabúðirnar af. Það var hann sem ákvað að dagbók Önnu Frank skildi gefin út. Anna Frank er eitt kunnasta fórnarlamb helfararinnar. Dagbók hennar er ein mest lesna bók í heimi og hefur efni hennar verið nýtt í gerð kvikmynda og leikrit verið skrifuð eftir henni.
Mest lesið Eldur í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu í Úkraínu Erlent Næsta lægð nálgast landið og færir með sér gula viðvörun Veður Eigi að standa saman um fjárfestingu í jafnrétti til náms Innlent Úkraínumenn vilji valda upplausn Erlent „Fullorðna fólk, grow up!“ Innlent Allt svo snyrtilegt við höfnina í Vestmannaeyjum Innlent Þykir sárt að vera stunginn í bakið af vini sínum Innlent Hundurinn í hættu eftir að súkkulaði var sett inn um lúguna Innlent Vistaður í fangaklefa þangað til lögregla kemst að því hver hann er Innlent Löturhæg umferð inn í borgina Innlent Fleiri fréttir Eldur í Zaporizhzhia-kjarnorkuverinu í Úkraínu Úkraínumenn vilji valda upplausn Úkraínski herinn kominn um 30 kílómetra inn í Rússland Segir Írani hafa hakkað tölvupósta framboðsins Varð vitni að árásinni sem varð systur hennar að bana Sextíu og einn látinn eftir flugslysið í Brasilíu Gerðu loftárás á skóla í nótt Rússar lýsa yfir neyðarástandi Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Aflýsir fundi eftir viðvörun um mögulegan ofurskjálfta Andmæla ekki notkun vestrænna vopna í áhlaupi á Rússland Þriðja ungmennið handtekið í tengslum við Swift-tónleikana Maduro lokar X í tíu daga Segir Puigdemont flúinn frá Spáni aftur Ísraelar aftur að samningaborðinu í næstu viku Tveir handteknir fyrir að dreifa röngum upplýsingum á netinu Emhoff viðurkennir að hafa haldið framhjá fyrstu eiginkonu sinni Rússar þurfi að finna fyrir stríðinu á eigin skinni Trump vill mæta Harris þrisvar í kappræðum Harris þaggaði niður í stuðningsfólki Palestínumanna Leiðtogi sjálfstæðissinna í felum fyrir katalónsku lögreglunni Fregnir af áhlaupi Úkraínumanna í Rússlandi enn óljósar Ætluðu að drepa eins marga og þeir gætu Átta daga geimferð gæti orðið að átta mánuðum Dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að pynta og misnota hunda Segir réttlætanlegt og siðferðilega verjandi að svelta íbúa Gasa Er óviss um friðsamleg forsetaskipti ef Trump tapar Þúsundir gagn-mótmælenda kæfðu boðaðar óeirðir Tónleikum Taylor Swift frestað: „Best að þessu sé slaufað þó að það sé rosalega sárt“ Stjúpsonur norska prinsins handtekinn um helgina Sjá meira