Erlent

Þúsundir flýja Líbýu á hverjum degi

Gaddafi
Gaddafi
Þúsundir manna halda áfram að flýja Líbýu á degi hverjum, landleiðina, loftleiðina og sjóleiðina. Mikill fjöldi flóttamanna hefur komið yfir landamærin til Egypalands. Hundruð manna bíða afgreiðslu á pappírum sínum í landamærabænum Salloum.

Einn margra breskra borgara sem unnið hefur við olíuvinnslu í Líbýu gekk yfir eyðimörkina að bænum. Uppreisnarmenn hafa náð stórum hluta landsins á sitt vald. En á þeim svæðum þar sem Gaddafi og stuðningsmenn hans ráða heldur ofbeldið og ógnanirnar áfram.

Ban Ki-moon framkvæmdastjór Sameinuðu þjóðanna segir marga flóttamenn hafa orðið fyrir ofsóknum og þeim ógnað með skotvopnum og hnífum á flóttanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×