Fótbolti

Sevilla vann í Portúgal en Porto fór áfram á fleiri útivallarmörkum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Howard Webb rak tvo menn útaf í leiknum í kvöld.
Howard Webb rak tvo menn útaf í leiknum í kvöld. Mynd/AP
Luis Fabiano tryggði Sevilla 1-0 útisigur á Porto í seinni leik liðanna í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar í kvöld en það dugði þó ekki til þar sem að Porto vann fyrri leikinn 2-1 á Spáni og fór því áfram á fleiri mörkum skoruðum á útivelli.

Fabiano hafði komið inn á sem varamaður á 55. mínútu og skoraði sigurmarkið sitt síðan á 71. mínútu eftir að hafa leikið á varnarmann.

Porto-maðurinn Alvaro Pereira var rekinn útaf tveimur mínútum eftir að Sevilla komst yfir í leiknum en Sevilla var bara manni fleiri í fimm mínútur eftir að Alexis fékk sitt annað gula spjald á 77. mínútu.

Porto mætir CSKA Moskvu í 16 liða úrslitunum en Rússarnir slógu gríska liðið PAOK út í gær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×