Erlent

Rahm Emanuel kjörinn borgarstjóri Chicago

Rahm Emanuel, náinn ráðgjafi Baracks Obama bandaríkjaforseta og fyrrverandi starfsmannastjóri Hvíta Hússins náði kjöri sem borgarstjóri Chicago.

Samkvæmt frétt á CNN er talningu atkvæða ekki lokið en nýjustu tölur sína að Emanuel hefur sigrað með töluverðum yfirburðum.

Sem stendur hefur hann fengið 55% atkvæða en helsti keppinautur hans aðeins 24%. Það lítur því út fyrir að önnur umferð í kosningunum verði óþörf.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×