Erlent

Vilja fá Ben Ali framseldan frá Saudi Arabíu

Bráðabirgðastjórnin  í Túnis reynir nú að fá Ben Ali fyrrum forseta landsins framseldan frá Saudi Arabíu en hann flúði þangað í síðasta mánuði.

Bráðabirgðastjórnin vill að réttað verði yfir Ben Ali en hann er ásakaður um að hafa staðið fyrir morðum á mótmælendum og aðra alvarlega glæpi.

Jafnframt vill bráðabirgðastjórnin fá það staðfest frá Saudi Aröbum um að Ben Ali sé enn á lífi. Margar fregnir hafa borist um að forsetinn fyrrverandi sé alvarlega veikur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×