Erlent

Réðust að mótmælendum með sverðum og bensínsprengjum

Mótmælendur í Kaíró höfuðborg Egyptalands lentu í nótt í átökum við hóp óeinkennisklæddra manna sem voru vopnaðir sverðum og bensínsprengjum. Mótmælendurnir voru fyrir utan höfuðstöðvar leyniþjónustunnar í borginni og kröfðust þess að stofnunin yrði lögð niður.

Þetta er í fyrsta sinn síðan Mubarak forseti sagði af sér sem ráðist er að mótmælendum en árásir af þessu tagi voru algengar í mótmælaöldunni sem reið yfir landið og lauk með afsögn Mubaraks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×