Erlent

Köngulær leita í Mözdur - 65 þúsund bílar innkallaðir

Gula Sac köngulóin kann vel við Mözdur.
Gula Sac köngulóin kann vel við Mözdur.
Japanski bílaframleiðandinn Mazda hefur innkallað 65 þúsund bíla vegna sérkennilegs bílaáhuga köngulóa.

Gula Sac köngulóin leitar í eldsneytiskerfi bílanna og býr sér til hreiður. Þar vefa þær köngulóavefi og láta fara vel um sig.

Bílaframleiðandinn hefur fundið um tuttugu tilvik þar sem köngulóin hefur hreiðrað um sig í bílunum með þeim afleiðingum að þrýstingur í eldsneytistankinum hefur fallið og eldhætta aukist.

Ekki er vitað hvers vegna köngulærnar leita í bílana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×