Erlent

Knútur er dauður

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Frægasti ísbjörn allra tíma, björninn Knútur, drapst á heimili sínu í dýragarði í Þýskalandi í dag. Þýska blaðið Spiegel greinir frá þessu en segir jafnframt að ekki liggi fyrir af hverju Knútur drapst. Knútur hefur verið í dýragarði í Berlín frá því móðir hans hafnaði honum og bróður hans. Knútur var fjögurra ára gamall.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×