Erlent

Hafa tvo sólarhringa til að yfirgefa Benghazi

Saif al-Islam einn af sonum Muammar Gaddafi hefur gefið íbúum Benghazi tvo sólarhringa til að yfirgefa borgina. Borgin er síðasta stóra borgin sem er á valdi uppreisnarmanna.

Talið er að sókn hersveita Gaddafi í átt að Benghazi hefjist að fullu í dag og að bæði stórskotahríð og loftárásir muni skella á borgina um helgina.

Á meðan á þessu stendur er enn rifist um það í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna hvort setja eigi flugbann á Líbýu eða ekki. Saif al-Islam gefur lítið fyrir slíkt bann og segir að bardögum í Líbýu verði lokið áður en bannið kemst í gagnið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×