Erlent

Mannskæð sjálfsmorðsárás í Afganistan

MYND/AP
Að minnsta kosti 36 létust í sjálfsmorðsárás í norðurhluta Afganistans í dag. Árásin var gerð á skráningarstöð Afganska hersins í borginni Kunduz. Á föstudaginn var dó lögreglustjóri borgarinnar í annarri sjálfsmorðsárás.

Á síðustu árum hefur óöldin aukist til muna á svæðinu, sem áður var á meðal friðsælustu svæða í landinu. Talíbanar hafa hinsvegar náð töluverðum ítökum á svæðinu síðustu misseri og hafa þeir lýst ábyrgðinni á morðinu á lögreglustjóranum á hendur sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×