Erlent

Ungur maður skotinn til bana á Nörrebro

Nítján ára gamall unglingur lést í morgun af skotsárum sem hann varð fyrir við Blågårdsgade á Nörrebro í Kaupmannahöfn seint í gærkvöld.

Um var að ræða mann af annari kynslóð nýbúa í Danmörku en lögreglan segir að skotárásin á hann tengist öðrum slíkum milli glæpagengja í borginni að undanförnu.

Á Nörrebro í gærkvöldi kom bíll akandi að hópi manna, þrír stigu úr bílnum og létu skothríð dynja á hópnum með fyrrgreindum afleiðingum áður en þeir flúðu af vettvangi.

Þetta var fimmta skotárásin í Kaupmannahöfn á einni viku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×