Erlent

Her Gaddafi nær bænum Brega

Her Muammar Gaddafi leiðtoga Líbýu heldur áfram að vinna borgir og bæi af uppreisnarmönnum í landinu. Í gærkvöldi náðu þeir bænum Brega á sitt vald en hann er í austurhluta landsins.

Samkvæmt frétt um málið á BBC munu tugir uppreisnarmanna hafi flúið frá Brega undir þungri stórskotahríð og loftárásum. Her Gaddafi er nú á leið til Benghazi sem er stærsta borgin á valdi uppreisnarmanna.

Fréttamaður BBC á staðnum segir að bardagi um Benghazi muni verða sá blóðugasti hingað til í borgarastríðinu sem geysar í Líbýu.

Nýjustu fréttir herma að uppreisnarmenn segjast hafa Brega enn á valdi sínu þannig að óljóst er hver ræður bænum í augnablikinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×