Erlent

Átján ára piltur skotinn til bana

Mynd úr safni
Mynd úr safni
Átján ára gamall piltur var skotinn til bana fyrir utan skemmtistað í New Orleans í Bandaríkjunum í gærkvöld. Fjórir aðrir unglingar eru særðir eftir að maður gekk inn á skemmtistaðinn og hóf skothríð.

Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er skotmaðurinn ófundinn og hefur verið lýst eftir vitnum af atvikinu, en eftir að hann var búinn að skjóta unglinganna flúði hann.

Svo virðist sem krakkarnir hafi verið í einhverskonar unglingapartýi en þau eru á aldrinum 14 til 18 ára. Rannsókn á málinu stendur yfir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×