Erlent

Harðir bardagar í Misrata

Frá Líbíu
Frá Líbíu Mynd/AFP
Uppreisnarmenn í Líbíu fullyrða að þeir hafi náð bæjunum Brega, Ras Lanuf og Ujala í austurhluta landsins á sitt vald í gær. Brega og Ras Lanuf eru mikilvægir fyrir olíuiðnað landsins en harðar bardagar geysa nú um borgina Misrata í vesturhluta landsins.

Frakkar segjast hafa skotið niður fimm líbískar orrustuþotur í gær og tvær þyrlur en stjórnvöld í Líbíu fullyrða að yfir eitt hundrað óbreyttir borgarar hafi fallið í loftárásum bandamanna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×