Erlent

Björn beit 12 ára dreng

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björn. Mynd/ afp.
Björn. Mynd/ afp.
Tólf ára gamall drengur var bitinn af birni í Härjedalen í miðhluta Svíþjóðar í dag. Lögreglan í Jämtland segir að ekki liggi fyrir hversu alvarlega slasaður drengurinn er. Drengurinn var á skíðum með jafnöldrum sínum við Funäsdalsberget þegar björninn beit hann í báða fótleggina. Hann var einnig bitinn í bakið, eftir því sem fram kemur á fréttavef Danmarks Radio. Sjúkraþyrla var send á vettvang til að sækja drenginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×