Myrtu óbreytta borgara sér til skemmtunar 24. mars 2011 08:53 Tveir hinna ákærðu. MYND/AP
Bandarískur hermaður hefur viðurkennt að hafa verið meðlimur í hópi sem myrti almenna borgara í Afganistan sér til skemmtunar. Hermaðurinn, hinn 23 ára gamli Jeremy Morlock, hefur borið fyrir herrétti að hann hafi ásamt nokkrum félögum sínum í hernum, sviðsett átök til þess að eiga auðvelt með að drepa saklausa menn sem urðu á vegi þeirra. Að minnsta kosti þrír óvopnaðir afganskir menn voru myrtir á þennan hátt. Morlock ber fyrir rétti að hann og félagar hans hafi litið á þetta sem nokkurs konar íþrótt eða skemmtun. Málið hefur vakið mikla reiði um heim allan en alls eru fimm hermenn ákærðir í málinu. Þýska blaðið Der Spiegel birti á dögunum myndir af mönnunum þar sem þeir stilla sér sigri hrósandi upp við hlið hinna látnu eins og um veiðiferð hafi verið að ræða. Sumir hermannanna tóku sér minjagripi um morðin og meðal annars fannst hauskúpa hjá einum þeirra. Morlock sér nú fram á að eyða að minnsta kosti 24 árum í fangelsi en hann á þó möguleika á reynslulausn eftir sjö ár. Það kemur til vegna samkomulags sem hann gerði við saksóknarann en hann hefur fallist á að bera vitni gegn félögum sínum.
Mest lesið Heimilið algjörlega í rúst þegar þau komu heim eftir Þjóðhátíð Innlent Rússar lýsa yfir neyðarástandi Erlent Myndi fara stystu leið upp í sveit Innlent Á hækjum eftir tæklingu í brekkunni á Þjóðhátíð Innlent Ekki góð forgangsröðun að verja fjármunum til efnameiri foreldra Innlent Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Erlent Patrik biðst afsökunar Innlent Umdeilt kosningamyndband Höllu „bara í gríni gert“ Innlent Blöskrar græðgi á kostnað gæða Innlent Engin fíkniefni reyndust um borð í bátnum Innlent Fleiri fréttir Rússar lýsa yfir neyðarástandi Flugvél með 62 innanborðs brotlenti í Brasilíu Aflýsir fundi eftir viðvörun um mögulegan ofurskjálfta Andmæla ekki notkun vestrænna vopna í áhlaupi á Rússland Þriðja ungmennið handtekið í tengslum við Swift-tónleikana Maduro lokar X í tíu daga Segir Puigdemont flúinn frá Spáni aftur Ísraelar aftur að samningaborðinu í næstu viku Tveir handteknir fyrir að dreifa röngum upplýsingum á netinu Emhoff viðurkennir að hafa haldið framhjá fyrstu eiginkonu sinni Rússar þurfi að finna fyrir stríðinu á eigin skinni Trump vill mæta Harris þrisvar í kappræðum Harris þaggaði niður í stuðningsfólki Palestínumanna Leiðtogi sjálfstæðissinna í felum fyrir katalónsku lögreglunni Fregnir af áhlaupi Úkraínumanna í Rússlandi enn óljósar Ætluðu að drepa eins marga og þeir gætu Átta daga geimferð gæti orðið að átta mánuðum Dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að pynta og misnota hunda Segir réttlætanlegt og siðferðilega verjandi að svelta íbúa Gasa Er óviss um friðsamleg forsetaskipti ef Trump tapar Þúsundir gagn-mótmælenda kæfðu boðaðar óeirðir Tónleikum Taylor Swift frestað: „Best að þessu sé slaufað þó að það sé rosalega sárt“ Stjúpsonur norska prinsins handtekinn um helgina Dæmdur í fjögurra mánaða fangelsi og brottvísað fyrir árásina á Mette Mikill viðbúnaður vegna mögulegra óeirða í dag Höfuðpaurinn á bakvið árásirnar á Ísrael nýr pólitískur leiðtogi Hamas Walz hjólaði í Trump og Vance á fyrsta kosningafundinum í gær Walz sniðugur veiðimaður sem höfði til karla á miðjum aldri Harris velur ríkisstjóra Minnesota sem varaforsetaefni Slítur þingi eftir að forsætisráðherrann flúði Sjá meira