Erlent

Strúturinn snéri heim

Mynd úr safni
Strútur sem strauk frá bóndabýli í Rúmeníu snéri aftur heim til sín nokkrum dögum síðar.

Eigandi strútsins, Florin Diaconescu, segir að hann hafi verið búinn að gefa upp alla von.

„En svo sá ég rykið þyrlast upp nokkur hundruð metrum fyrir framan bóndabæinn og þar kom hann á fullri ferð,“ segir hann.

Strútar eru þekktir fyrir að geta hlaupið hratt en að þeir geti þekkt heimaslóðir sínar hefur ekki verið vitað um áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×