Erlent

11 milljónir ná í nýjan Firefox

Tæplega ellefu milljónir manna hafa náð sér í nýjustu útgáfuna af Firefox vafranum frá því hann kom á markað á dögunum. Firefox er næst vinsælasti vafrinn í dag og á heimasíðu Mozilla sem gerir vafrann má sjá kort af því í rauntíma hvaðan verið er að ná í nýja vafrann.

Vinsældir þessarar útgáfu eru þó heldu minni en þeirrar sem kom á undan, en vafri Google, Chrome, hefur notið sívaxandi vinsælda og saxar á forskot Firefox og Internet Explorer.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×