Fótbolti

Gylfi kom af bekknum í tapleik

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson.
Gylfi Þór Sigurðsson og félagar í þýska liðinu Hoffenheim máttu sætta sig við tap, 3-2, gegn Freiburg á útivelli í dag.

Gylfi Þór byrjaði á bekknum, líkt og oft áður, en fékk að spila síðustu 25 mínútur leiksins.

Ryan Babel, fyrrum leikmaður Liverpool, skoraði annað marka Hoffenheim í leiknum.

Hoffenheim er í áttunda sæti þýsku úrvalsdeildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×