McIlroy lék á 3 höggu undir pari í dag eða 69 höggum. Ástralinn Jason Day lék frábært golf í dag eða 8 höggum undir pari en hann í öðru sæti, tveimur höggum á eftir McIlroy.
Tiger Woods átti frábæran dag en hann þokaði sér upp í þriðja sætið með því fá 9 fugla og 3 skolla á hringum í dag sem hann lék á -6 eða 66 höggum. Samtals er hann á -7 og aðeins þremur höggum á eftir efsta manni. Woods, sem fjórum sinnum hefur sigrað á þessu móti, átti næst besta skor dagsins en Day var sá eini sem lék betur.
Margir þekktir kappar úr leik þar á meðal efsti kylfingur heimslistans

Phil Mickelson, sem hefur titil að verja á mótinu, er á -2 þegar keppni er hálfnuð en hann lék á pari vallar í dag eða 72 höggum og er hann í 20. sæti ásamt fleiri kylfingum
Day er líkt og McIlroy í hópi yngstu kylfinga mótsins en hann er 24 ára gamall og hann hefur aldrei sigrað á atvinnumóti á ferlinum – þrátt fyrir að vera í 41. sæti heimslistans. Day var nýliði á PGA mótaröðinni árið 2008 en besti árangur hans er 9. sæti.
Geoff Ogilvy frá Ástralíu siglir lygnan sjó í fjórða sæti á -6 en hann hefur ekki verið mikið í umræðunni um sigurinn á mótinu þrátt fyrir að hann hafi sigrað tvívegis á risamóti. Alvaro Quiros frá Spáni sem var efstur eftir fyrsta daginn er á -6 en hann lék á einu höggi yfir pari í dag.
Að venju voru margir þekktir kappar sem féllu úr leik í dag þegar keppendum var fækkað að loknum öðrum keppnisdegi. Graeme McDowell frá Norður-Írlandi, sem lét mikið að sér kveða á síðasta ári, var einu höggi frá því að komast áfram en hann var á +2 samtals en þeir sem voru á +1 eða betra skori eftir 36 holur komust áfram. Retief Goosen frá Suður-Afríku (+4), Padraig Harrington frá Írlandi (+5), Martin Kaymer frá Þýskalandi (+6) og Vijay Singh frá Fijí (+10) eru allir úr leik.
Fred Couples heldur uppi heiðri „eldri" meistara Mastersmótsins. Hinn 51 árs gamali Couples er samtals á 5 höggum undir pari vallar og er hann í hópi 10 efstu. Couples átti fjórða besta skor dagsins en hann lék á -4 í dag. Hann er á sama skori og Ricky Fowler sem er 23 ára gamall en hann var í bandaríska Ryderliðinu á Celtic Manor í Wales s.l. haust.
Lee Westwood frá Englandi, sem er annar í röðinni á heimslistanum, er á -5 en hann átti þriðja besta hring dagsins eða 67 högg en hann lék fyrsta hringinn á pari.
Staðan að loknum öðrum keppnisdegi, Augusta, par 72:
Kylfingarnir eru bandarískir nema annað sé tekið fram.
134 Rory McIlroy (Norður-Írland) 65 69
136 Jason Day (Ástralía) 72 64
137 K J Choi (Suður-Kórea) 67 70
138 Geoff Ogilvy (Ástralía) 69 69, Alvaro Quiros (Spánn) 65 73
139 Ricky Barnes 68 71, Rickie Fowler 70 69, Lee Westwood (England) 72 67, Fred Couples 71 68, Y.E. Yang (Suður-Kórea) 67 72
140 Ross Fisher (England) 69 71, Jim Furyk 72 68, Charl Schwartzel (Suður-Afríka) 69 71, Luke Donald (England) 72 68, Brandt Snedeker 69 71
141 David Toms 72 69, Angel Cabrera (Argentína) 71 70
142 Steve Stricker 72 70, Adam Scott (Ástralía) 72 70, Gary Woodland 69 73, Ryo Ishikawa (Japan) 71 71, Phil Mickelson 70 72, Dustin Johnson 74 68, Trevor Immelman (Suður-Afríka) 69 73, Paul Casey (England) 70 72, Bo Van Pelt 73 69
143 Charley Hoffman 74 69, Ryan Palmer 71 72, Martin Laird (Skotland) 74 69, Ian Poulter (England) 74 69, Matt Kuchar 68 75, Alex Cejka (Þýskaland) 72 71, Ryan Moore 70 73
144 Nick Watney 72 72, Bill Haas 74 70, Justin Rose (England) 73 71, Miguel Angel Jimenez (Spánn) 71 73, Bubba Watson 73 71, Edoardo Molinari (Ítalía) 74 70
145 Aaron Baddeley (Ástralía) 75 70, Steve Marino 74 71, Hideki Matsuyama (Japan) 72 73, Jeff Overton 73 72, Camilo Villegas (Kólumbía) 70 75, Kyung-Tae Kim (Suður-Kórea) 70 75
Eftirtaldir kylfingar komust ekki í gegnum niðurskurðinn:
146 Anthony Kim 73 73, Sean O'Hair 70 76, Zach Johnson 73 73, Lucas Glover 75 71, Stewart Cink 71 75, Tim Clark (Suður-Kórea) 73 73
147 Kevin Na 73 74, Jerry Kelly 74 73, Mark Wilson 76 71, Stuart Appleby (Ástralía) 75 72
148 Retief Goosen (Suður-Afríka) 70 78, Heath Slocum 72 76, Lodewicus Oosthuizen (Suður-Afríka) 75 73, David Chung 72 76, D.A. Points 72 76, Peter Hanson (Svíþjóð) 72 76, Ben Crane 73 75, Yuta Ikeda (Japan) 74 74, Carl Pettersson (Svíþjóð) 75 73, Lion Kim (Suður-Kórea) 76 72, Jhonattan Vegas 72 76, Jason Bohn 73 75
149 Peter Uihlein 72 77, Anders Hansen (Danmörk) 72 77, Padraig Harrington (Írland) 77 72, Hiroyuki Fujita (Japan) 70 79, Gregory Havret (Frakkland) 70 79, Kevin Streelman 75 74
150 Jose-Maria Olazabal (Spánn) 73 77, Rory Sabbatini (Suður-Afríka) 74 76, Mark O'Meara 77 73, Martin Kaymer (Þýskaland) 78 72, Larry Mize 73 77, Jin Jeong (Suður-Kórea) 73 77
151 Tom Watson 79 72, Craig Stadler 80 71, Jonathan Byrd 73 78
152 Nathan Smith 75 77, Davis Love III 75 77
153 Sandy Lyle (Skotland) 73 80
154 Vijay Singh (Fijí) 76 78
155 Mike Weir (Kanada) 76 79, Ben Crenshaw 78 77, Ian Woosnam (Wales) 78 77
157 Henrik Stenson (Svíþjóð) 83 74