Erlent

Forsetinn felur sig í kjallaranum

Hörð átök hafa geisað í landinu síðustu daga og hafa hermenn á vegum Sameinuðu þjóðanna særst í átökunum.
Hörð átök hafa geisað í landinu síðustu daga og hafa hermenn á vegum Sameinuðu þjóðanna særst í átökunum. ap
Forseti Fílabeinsstrandarinnar Laurent Gbagbo, felur sig nú í kjallara forsetahallarinnar í Abidjan en hersveitir uppreisnarmanna sitja um höllina. Gbagbo hefur neitað að láta af embætti þrátt fyrir að hafa tapað í forsetakosningunum fyrir nokkru. Hersveitir Alessane Outtara sem sigraði í kosningunum hafa nú töglin og hagldirnar í landinu að því er virðist og þess skammt að bíða að Gbagbo gefist upp, að því er fram kemur á BBC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×