Erlent

Sweet Micky líklega næsti forseti Haítí

Fyrstu niðurstöður í seinni umferð forsetakosninganna á Haítí benda til að tónlistarmaðurinn Michel Martelly hafi náð kjöri.

Martelly, sem ber viðurnefnið Sweet Micky hefur lofað viðamiklum breytingum á högum Haítíbúa en hans bíður gríðarlegt verkefni við að byggja upp landið að nýju eftir jarðskjálftana fyrir rúmu ári síðan og kólerufaraldur sem hefur hrjáð landsmenn hans æ síðan.

Sweet Micky hefur enga reynslu af stjórnmálum en boðskapur hans féll Haítíbúum vel í geð. Það spillti ekki fyrir að hann á að baki fjölda af vinsælum sönglögum á Haítí.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×