Erlent

Konan í Trípolí enn týnd

Það varð uppi mikið fjaðrafok þegar konan fór inn á hótelið.
Það varð uppi mikið fjaðrafok þegar konan fór inn á hótelið.
Faðir konunnar, sem vakti heimsathygli fyrir skömmu þegar hún braut sér leið inn á hótel erlendra fréttamanna í Trípolí og sagði frá að sér hefði verið nauðgað, segir að dóttir hans sé enn týnd.

Ekkert hefur sést til hennar síðan öryggisverðir og starfsfólk hótelsins drógu hana á brott þar sem hún reyndi að útskýra hvað hafði komið fyrir hana.

Faðir hennar sagði í samtali við CNN að hann vonist til þess að dóttir sín sé á lífi en hann óttist um örlög hennar.

Talsmenn stjórnvalda höfðu áður sagt fréttamönnum að konan væri heil á húfi og væri hjá fjölskyldu sinni.

Faðir hennar segir að það sé ekki rétt, henni sé liklega haldið einhvers staðar í fangelsi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×