Fótbolti

Gylfi lék í 45 mínútur í 1-0 sigri Hoffenheim

Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar
Gylfi Sigurðsson lék í 45 mínútur með Hoffenheim í 1-0 sigri liðsins gegn Frankfurt í dag í þýsku 1. deildinni.
Gylfi Sigurðsson lék í 45 mínútur með Hoffenheim í 1-0 sigri liðsins gegn Frankfurt í dag í þýsku 1. deildinni. Nordic Photos/Getty Images
Gylfi Sigurðsson lék í 45 mínútur með Hoffenheim í 1-0 sigri liðsins gegn Frankfurt í dag í þýsku 1. deildinni. Gylfi kom inná sem varamaður í upphafi síðari hálfleiks en hann hefur aðeins fengið tækifæri í byrjunarliðinu hjá Hoffenheim í 6 leikjum það sem af er tímabilinu.

Alls hefur landsliðsmaðurinn skorað 7 mörk og þar af 2 úr vítaspyrnum. Roberto Firmino skoraði eina mark Hoffenheim á 78. mínútu aðeins fjórum mínútum eftir að hann kom inná sem varamaður.

Hoffenheim er um miðja deild með 40 stig eftir 30 leiki þegar fjórar umferðir eru eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×