Innlent

Prinsessur og prinsar í leikskólanum Arnarsmára

Litlir prinsar og prinsessur mættu prúðbúin á leikskólann Arnarsmára í Kópavoginum í morgun. Starfsfólk leikskólans tók á móti þeim á konunglegan máta, og voru konurnar með glæsilega hatta að sið breskra hefðarfrúa.

Þó börnin þekki víst fæst til þeirra Vilhjálms bretaprins og Katrínar Middleton sem ganga í það heilaga í dag þá gæddu þau sér á ljúffengu brauði og mjólk í tilefni dagsins við morgunverðarborðið.

Myndir af konunglegu hátíðarhöldunum má sjá í meðfylgjandi myndasafni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×