Vilja samstarfshóp um framtíðarstaðsetningu Gæslunnar 27. apríl 2011 19:54
Stjórn Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum vill halda áfram hagkvæmnisgreiningu á flutningi Landhelgisgæslunnar til Suðurnesja. Þá vill stjórnin mynda samstarfshóp um málið þar sem sveitarfélögin á svæðinu og stjórnvöld eigi sæti. Á samráðsvettvangi sveitarfélaga á Suðurnesjum og stjórnvalda í dag var lagt fram minnisblað um hagkvæmnisathugun vegna flutnings starfsemi Landhelgisgæslu Íslands til Suðurnesja. „Minnisblaðið er gott innlegg í umræðu um flutning Landhelgisgæslunnar en í minnisblaðinu er aðeins lagt mat á kostnað við verkefnið, þ.e.a.s. einskiptiskostnað og árlega hækkun rekstrarkostnaðar,“ segir í yfirlýsingu frá stjórninni. „Ljóst er að mikilvægt er að halda áfram hagkvæmisgreiningu á flutningi Landhelgisgæslunnar þar sem farið er yfir hver sé framtíð Landhelgisgæslunnar og hagkvæmni flutnings fyrir bæði gæsluna og Suðurnes enda tekur minnisblaðið ekki á þeim framtíðarkostnaði er Landhelgisgæslan mun verða fyrir ef hún er áfram á þeim stað sem hún er í dag,“ segir ennfremur og bent á að líkt og komi fram í umræddu minnisblaði þá geti Landhelgisgæslan ekki vaxið þar sem hún er og húsnæði hennar er ófullnægjandi. „Stjórn SSS óskar því eftir því að myndaður verði samstarfshópur stjórnvalda og sveitarfélaga á Suðurnesjum til að halda áfram þessari hagkvæmnisgreiningu svo allar hliðar málsins liggi ljósar fyrir áður en ákvörðun verður tekin.“
Mest lesið Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Innlent Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma Innlent Walz sniðugur veiðimaður sem höfði til karla á miðjum aldri Erlent Sterkar vísbendingar um falsboð Innlent Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Innlent Beðið eftir eldgosi: Allar vefmyndavélarnar á einum stað Innlent „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Innlent Margir urðu brekkunni að bráð Innlent Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Innlent „Eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar verðleggi vinnu sína“ Innlent Fleiri fréttir Þjórfé eins og lúsmý: „Við viljum ekkert fá þetta“ Konur skipuleggi sig oft í marga mánuði áður en þær koma „Eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar verðleggi vinnu sína“ Sterkar vísbendingar um falsboð Leit við Kerlingarfjöll og varaforsetaefni Kamölu Harris Telja bílinn ekki á vegum ferðamannanna Maður grunaður um tilefnislausa stunguárás í varðhaldi síðan í janúar Hörður Torfason biður Samtökin 78 afsökunar Óvíst hvort ferðamennirnir séu á yfirgefna bílaleigubílnum Nýrnaveiki staðfest í sjókví í Arnarfirði Leitarsvæðið torsótt og erfitt yfirferðar Fórnarlamb stunguárásar útskrifað af sjúkrahúsi Fundu tóman bílaleigubíl og ræsa út leitarhunda Ríkið komið um borð í milljarðaverkefni í Eyjafirði Víkka út leitarsvæðið án nokkurra nýrra vísbendinga Margir urðu brekkunni að bráð Skjálftavirkni meiri en landris hægara Leitað að ferðamönnum í Kerlingarfjöllum „Ekki skemmtilegt að koma svona til baka fyrsta vinnudag eftir sumarfrí“ Sendu skilaboð á Neyðarlínuna en enginn fundist á svæðinu Handleggsbrotnum bjargað af Baulu Ferðamennirnir ófundnir Björgunarsveitir sækja slasaðan ferðamann á Baulu Útkall vegna ferðamanna sem segjast lokaðir inni í helli Fundinn heill á húfi „Brá verulega að heyra að fangaverðir hefðu slasast“ Dómsmálaráðherra brugðið og umferðin eftir Verslunarmannahelgi Öflugar gufusprengingar hafi orðið í Hveradölum Eyðilögðum tjöldum pakkað saman á gervigrasinu Ekið á búfé og keyrt ofan í læk Sjá meira