Innlent

Bretar vilja ekki mæta Íslendingum í dómsal

SB skrifar
Landsbanki Íslands
Landsbanki Íslands /Rósa
Greinarhöfundur breska blaðsis Financial Times segir bresk stjórnvöld ekki hafa áhuga á málaferlum gegn íslandi vegna Icesave málsins. Slík málaferla gætu valdið því að bretar stæðu berskjaldaðir gagnvart sambærilegum kröfum ef upp kæmi kerfisvandamál í breska bankakerfinu.

Greinin er eftir blaðamanninn John Dizard sem skrifaði hefur um efnahagsmál í Financial Times í tugi ára. Hann segir Icesave málið „stærra en Ísland". Eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna hafi hann beðið eftir viðbrögðum Breta og Hollendinga, bresk stjórnvöld hafi haldið sér saman og Hollendingar hafi ekki sent flotann af stað, þrátt fyrir nokkrir hollenskir stjórnmálamenn hafi látið í sér heyra, eins og pistlahöfundur orðar það.

John vitnar í þýska fræðimanninn Tobias Fuchs, sem vinnur að lagarannsóknum við Evrópuháskólann í Frankfurt Oder. Hann hefur komist að því að Ísland hafi ekki brotið gegn tilskipun um innlánstryggingakerfi að því er varðar lágmárkstryggingu. Það er að segja að Íslendingar bæru ekki ábyrgð á Icesave reikningunum samkvæmt reglum EES.

Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, segir í grein á Evrópuvaktinni, að þessi staðreynd fæli bresk stjórnvöld frá því að láta reyna á lögfræðilega hlið málsins. Björn segir ríkisstjórnina hafa haft rangt fyrir sér í Icesave málinu, ráðherrar hafi stundað hræðsluáróður og flutt þjóðinni ósannindi um stöðu hennar ef hún segði nei við stefnu ríkisstjórnarinnar í Icesave málinu og sé ekki treystandi fyrir framhaldi málsins.

John Dizard, bendir á í grein sinni í Financial Times, að bæði Bretland og Holland munu, ef að líkum lætur, fá fullar bætir í Icesave málinu. Þar af leiðandi sé það ljóst af hverju bretar séu tregir til að sigra Ísland í réttarsal - slíkur sigur gæti skapað hættulegt fordæmi í komandi bankakreppum fyrir hinar stóru þjóðir og skapað þeim ábyrgð sem þær vilji ekki standa undir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×