Innlent

Á ofsahraða á Reykjanesbrautinni

Reykjanesbær. Myndin er úr safni.
Reykjanesbær. Myndin er úr safni.
Lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði bílstjóra sem ók á um 150 kílómetra hraða á Reykjanesbraut um sex leytið í morgun. Bílstjórinn má reikna með hárri sekt fyrir ofsaaksturinn.

Þá klippti lögregla skrásetningarnúmer af sex bifreiðum í umdæminu þar sem ekki hafði verið hirt um að greiða af þeim lögbundin gjöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×