Innlent

Flugeldafikt orsakaði eldsvoða

Eldur kom upp í ruslageymslu við leiksskólann á Stokkseyri í nótt. Tveir fjórtán ára drengir höfðu verið að leika sér með rakettu með þessum afleiðingum. Tvær rúður brotnuðu vegna hitans en skemmdir eru að öðru leyti ekki mjög miklar. Lögreglumenn sem mættu á svæðið röktu fótspor drengjanna í snjónum að dvalarstað þeirra og játuðu þeir verknaðinn þegar á þá var gengið.

Um óviljaverk mun hafa verið að ræða að sögn lögreglu. Að öðru leyti var nóttin róleg í umdæmi lögreglunnar á Selfossi fyrir utan að ökumaður ók útaf við Litlu Kaffistofuna um klukkan hálffjögur í nótt. Hann mun hafa misst stjórnina á bíl sínum í hálku. Bíllinn skemmdist lítillega en bílstjórinn slapp ómeiddur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×