Erlent

Skrópar í brúðkaupi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Krónprinsinn í Barein ætlar ekki að mæta. Mynd/ afp.
Krónprinsinn í Barein ætlar ekki að mæta. Mynd/ afp.
Krónprinsinn í Barein mun ekki mæta í brúðkaup Vilhjálms Bretaprins og Katrínar unnustu hans á föstudaginn vegna ófriðar í heimalandi hans. Salman bin Hamad Al-Khalifa sagði að það væri með mikilli sorg sem hann hefði komist að þessari niðurstöðu. Hann sagði að hann hefði vonast til þess að ástandið í Barein myndi batna svo að hann gæti mætt.

Mannréttindahópar höfðu mótmælt því að hann yrði viðstaddur brúðkaupið vegna framgöngu ríkisstjórnar hans gagnvart mótmælendum. Undanfarið hefur heimspressan fjallað mikið um átök mótmælenda og öryggishersveita í Barein, en ófriður hefur verið þar um mánaðabil.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×