Innlent

Gáfu fæðingardeildinni fullkominn blóðþrýstingsmæli

Frá afhendingu blóðþrýstingsmælisins
Frá afhendingu blóðþrýstingsmælisins
Soroptimistaklúbbur Árbæjar gaf fæðingardeild 23A á Landspítala fullkominn stafrænan blóðþrýstingsmæli á standi með súrefnismettunarmæli, að verðmæti um 450.000 krónur. 

Tækið kemur sér afar vel við umönnun kvenna í fæðingu,  til dæmis ef þær eru með mænurótardeyfingu, blóðþrýstingsvandamál eða þarfnast sérstaks eftirlits eftir keisaraskurð eða aðrar aðgerðir.  Tækið var afhent 2. maí 2011.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×