Erlent

Katrín keypti í matinn fyrir prinsinn

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Katrín er ekkert hætt að lifa lífi almúgamannsins þó að hún sé komin inn í konungsfjölskylduna. Mynd/ Getty.
Katrín er ekkert hætt að lifa lífi almúgamannsins þó að hún sé komin inn í konungsfjölskylduna. Mynd/ Getty.
Þótt Katrín Middleton sé nú orðin hluti af bresku konungsfjölskyldunni er hún síður en svo hætt að lifa lífi almúgamanneskjunnar. Daily Mail birti í dag myndir af Katrínu þar sem hún mætti hversdagslega klædd til að kaupa í matinn fyrir sig og bónda sinn í versluninni Waitrose skammt frá búgarðinum þar sem þau hjónin dvelja um þessar mundir. Daily Mail segir að Katrín hafi þó skorið sig úr mannfjöldanum að því leyti að þrír lífverðir fylgdu henni um hvert fótmál.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×