Innlent

Elsa nýr forseti borgarstjórnar

Elsa Hrafnhildur Yeoman, borgarfulltrúi Besta flokksins.
Elsa Hrafnhildur Yeoman, borgarfulltrúi Besta flokksins.
Elsa Hrafnhildur Yeoman var kjörin forseti borgarstjórnar á borgarstjórnarfundi sem nú stendur yfir. Björk Vilhelmsdóttir var kjörin 1. varaforseti og 2. varaforseti Óttarr Ólafur Proppé.

Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að Forseti og varaforseti borgarstjórar séu yfirleitt kjörnir til eins árs, en þar sem Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks og Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, sem áður gegndu embættum forseta og 1. varaforseta báðust lausnar var kosið að nýju í dag. Kosið verður í embætti forseta borgarstjórnar og varaforseta aftur í júní venju samkvæmt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×