Innlent

Ók ölvaður í gegn um girðingu við gufubaðið á Laugavatni

Ökumaður var handtekinn á Laugarvatni um helgina eftir að hann ók, ölvaður, í gegnum girðingu við nýbyggingu gufubaðsins á Laugarvatni og hafnaði þar ofan í skurði. 

Ökumaður hvarf af vettvangi en fannst skömmu síðar.  Bifreiðina tók maðurinn í óleyfi en hún var ólæst með lykli í kveikjulás á bifreiðastæði við Menntaskólann. 

Viðurkenning ökumanns liggur fyrir í málinu auk þess sem vitni voru að atvikinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×