Innlent

Andlát í Árbæ: Yfir tíu handteknir vegna málsins

Lögreglan gerði húsleit á þremur stöðum og handtók að minnsta kosti 7 einstaklinga í gær í tengslum við rannsókn sína á banvænu fíkniefni sem komið er í umferð hér á landi. Grunur leikur á að efnið hafi orðið ungri konu að bana í gær.

Því hefur lögreglan alls handtekið ellefu einstaklinga í tengslum við andlát konunnar sem varð 21 árs daginn áður en hún lést.

Ekki er ljóst hver nákvæm dánarorsök konunnar er. Það skýrist ekki fyrr en niðurstöður krufningar liggja fyrir.

Lögreglan leggur allt kapp á að rekja slóð fíkniefnisins. Óttast er að efnin séu komin í almenna dreifingu.

Nánar verður fjallað um málið í fréttum Stöðvar 2 í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×