Innlent

Veiðar stöðvaðar á svæði eitt

Strandveiðar á svæði númer eitt, voru stöðvaðar á miðnætti, þar sem bátarnir voru búnir að veiða heildarkvóta þessa mánaðar. Svæðið nær frá Snæfellsnesi til Bolungavíkur og er lang vinsælasta svæðið, sem sést best af því að lang flestir bátar eru skráðir til veiða þar.

Bátarnir hafa því klárað mánaðarkvótann á aðeins fimm virkum dögum, sem er enn betri árangur en í fyrra, sem þótti með ólíkindum góður. Bátarnir verða nú að bíða til mánaðamóta, en þá hefjast veiðar úr júní kvótanum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×