Handbolti

Rakel Dögg: Margt jákvætt í okkar leik

Stefán Árni Pálsson skrifar
„Það var margt jákvætt í okkar leik en ég hefði viljað sigra,“ sagði Rakel Dögg Bragadóttir eftir leikinn í dag.

„Við eigum alveg góðan möguleika á móti þessu liði og klúðruðum þessu í raun á síðustu fimm mínútum leiksins, þar gerum við of dýrkeypt mistök".

„Við erum að spila mjög góða vörn allan leikinn og nokkuð agaðan og skipulagðan sóknarleik. Við þurfum að nýta færin okkar betur á móti svona liðið og skjóta betur á markið. Markvörðurinn þeirra var okkur erfiður og við þurfum að skoða hana vel fyrir leikinn á morgun“.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×