Erlent

Telja líklegt að Palin gefi kost á sér

Sara Palin.
Sara Palin.
Svo virðist sem enn sé möguleiki á því að Sara Palin, fyrrverandi varaforsetaefni Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum, gefi kost á sér sem forseti Bandaríkjanna í kosningunum sem fram fara á næsta ári.

Samkvæmt fréttastofu Reuters þá bendir ýmislegt til þess að Palin ætli að gefa kost á sér í forvali Repúblikanaflokksins.

Palin nýtur gríðarlegra vinsælda á meðal svokallaðrar tepokahreyfingar í Bandaríkjunum. Þá má geta þess að kvikmynd um Söru verður frumsýnd í næsta mánuði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×