Erlent

Handteknir með lausnarfé fyrir sjóræningja

Sjóræningjarnir í Sómalíu eru alræmdir.
Sjóræningjarnir í Sómalíu eru alræmdir.
Þrír breskir ríkisborgarar voru handteknir í sómölsku borginni Mogadishu í gær. Mennirnir voru ásamt þremur öðrum útlendingum og höfðu þeir ríflega þrjár milljónir dollara undir höndum þegar þeir voru handteknir.

Í ljós kom að mennirnir þrír voru á leiðinni á fund sómalskra sjóræningja þar sem þeir ætluðu að greiða lausnargjald fyrir tvö flutningaskip, annars vega egypskt skip og hinsvegar kínverskt.

Mennirnir starfa hjá einkafyrirtæki sem sérhæfir sig í að takast á við sjóræningjana.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×