Erlent

Blóðug átök í Mexíkó

Mexíkósk lögregla.
Mexíkósk lögregla.
Alls létust 28 manns í byssubardögum á milli tveggja gengja í Vestur Mexíkó í gær. Saksóknari í landinu staðfesti að mexíkóska lögreglan hefði upprunalega fengið tilkynningu um mannrán.

Þegar þeir komu á vettvang þar sem ránið átti að hafa átt sér stað blöstu hinir látnu við þeim. Þá voru tíu mannlaus faratæki á svæðinu og augljós að skotbardagi hefði átt sér stað.

Líklega hafa þarna tekist á tvö fíkniefnagengi frá Mexíkó samkvæmt New York Times.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×