Erlent

Hosni Mubarak gæti átt dauðrefsingu yfir höfði sér

Mubarak.
Mubarak.
Saksóknari í Egyptalandi sagði í dag að Hosni Mubarak yrði ákærður fyrir að samsæri um að myrða mótmælendur í Egypsku byltingunni í febrúar.

Verði hann fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér dauðadóm. Tilkynning um þetta birtist á Facbook.

Þar kom einnig fram að synir Mubaraks yrðu ákærðir fyrir spillingu.

Yfirlýsingin kemur nokkrum dögum eftir kröftug mótmæli í Egyptalandi þar sem því var haldið fram að Mubarak væri að semja um friðhelgi við egypska herinn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×