Erlent

Vildi selja meydóm 13 ára dóttur sinnar

Óli Tynes skrifar
Felicia Rea McClure.
Felicia Rea McClure.
Þrjátíu og tveggja ára gömul kona í Salt Lake City í Bandaríkjunum hefur verið handtekin fyrir að reyna að selja meydóm 13 ára gamallar dóttur sinnar fyrir rúmlega eina milljón króna. Hún hafði áður selt myndir af henni í ögrandi nærfötum. Felicia Rea McClure lofaði karlmanni sem kallaður er Don að dóttir hennar myndi hafa samfarir við hann gegn fyrrnefndri greiðslu.

 

Dóttirin sagði lögreglunni að hún hefði upphaflega samþykkt þetta og farið með móður sinni í Victorias Secret verslun þar sem Don gat virt hana fyrir sér meðan hún mátaði undirföt. Dóttirin sagði að síðar hefði hún viljað hætta við þetta. Það var kærasti móðurinnar sem komst að þessu ráðabruggi og lét lögregluna vita.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×