Erlent

Páfinn kominn á Twitter

Nú hefur Benedikt sextándi skráð sig til leiks á samskiptasíðunni Twitter. Það gerir hann til að breiða út boðskap sinn til þeirra sem yngri eru.

Páfinn sagði í fyrstu færslu sinni í vikunni: „Kæru vinir, ég var að byrja hér - lofaður sér Jesú Kristur! Með bænum mínum og blessun, Benedictus XVI.“

Hann er nú þegar kominn með yfir 40 þúsund fylgjendur en sjálfur fylgist hann ekki með neinum. Hann notaði ekki hefðbunda tölvu þegar hann twítaði heldur iPad.

Páfinn sem er 84 ára gamall virtist skemmta sér vel við að skoða myndir og heimasíðu á nýju græjunni sinni, eins og sést glögglega í meðfylgjandi myndbandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×