Erlent

Háaldraður Dani tekinn með umfangsmikið vopnabúr

Lögreglan á Sjálandi í Danmörku lagði hald á umfangsmikið vopnabúr hjá 84 ára gömlum manni í bænum Næstved.

Samkvæmt frétt um málið í Ekstra Bladet komst lögreglan á sporið um vopnaeign mannsins þegar hann reyndi að selja hluta af vopnum sínum en flest þeirra eru ólögleg í Danmörku.

Að sögn sjónarvotta voru fleiri plastpokar með skotvopnum fjarlægðir af heimili mannsins og töluvert af sverðum. Nágrannar mannsins segja hann huggulegan en með mikinn áhuga á síðari heimsstryjöldinni.

Sökum aldurs mannsins er óvíst hvort hann verður úrskurðaður í gæsluvarðhalda meðan á rannsókn málsins stendur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×