Erlent

Þrír skotnir á kúrekasýningu

Þrír bandarískir ferðamenn særðust á kúrekasýningu í Suður-Dakóta á dögunum. Mennirnir voru í hópi fólks sem var að fylgjast með sviðsettum skotbardaga í stíl Villta Vestursins. Leikararnir nota púðurskot í byssur sínar en eitthvað virðist hafa farið úrskeiðis því í miðjum bardaganum fór allt í einu að blæða úr þremur áhorfendum.

Málið er í rannsókn en svo virðist sem alvöru kúlur hafi fyrir mistök verið settar í eina byssuna. Enginn særðist þó lífshættulega í bardaganum, en skipuleggjendur hafa ákveðið að hætta með sýninguna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×