Fótbolti

Rúnar: Lékum ekki vel

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Guðjón Baldvinsson á ferðinni í Gundadalnum í kvöld.
Guðjón Baldvinsson á ferðinni í Gundadalnum í kvöld. mynd/jens kristian vang
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR, var alls ekki nógu ánægður með leik sinna manna í Færeyjum í kvöld en sagði engu að síður gott að vinna.

"Við byrjuðum ekki nógu vel og fáum á okkur mark snemma. Færeyingarnir grimmir eins og við bjuggumst við. Síðan komum við til baka og lönduðum þessu," sagði Rúnar við Vísi.

"Þetta var alls ekkert sérstakur leikur hjá okkur en stundum er gott að vinna þó svo maður spili ekki vel."

KR fer heim með 1-3 sigur í farteskinu og er komið með annan fótinn í næstu umferð Evrópudeildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×